Samningalota 4-8. nóvember 2013
Samningalota um aukið frelsi í þjónustuviðskipum (TiSA) var haldin í Genf dagana 4-8. nóvember 2013. Þetta er þriðja lotan eftir að yfirlýsing þátttökuríkjanna var gefin út í júní sl. um að samningaviðræður væru formlega hafnar.
Til umræðu í lotunni voru megintexti samningsins auk viðauka um hraðpóstþjónustu (Competitive Delivery Services), flugþjónustu, för þjónustuveitenda, styrki í útflutningi (Export Subsidies), fjármálaþjónustu, alþjóðlega sjóflutninga og fagþjónustu (Professional Services). Auk þess kynntu Ísland og Noregur bakgrunnspappír fyrir viðauka um orkutengda þjónustu.
Í tengslum við lotuna var haldinn upplýsingafundur um stöðu viðræðanna með þeim ríkjum sem sótt hafa um aðild að viðræðunum, þ.e. Kína og Uruguay. Umsóknarríkin kynntu einnig í stuttu máli markmið sín og væntingar um útkomu viðræðanna.