Verulegur sparnaður lyfjakostnaðar hjá ríkissjóði og sjúklingum
Áætlað er að heildarverðendurskoðun lyfjagreiðslunefndar á apótekslyfjum og sjúkrahúslyfjum muni leiða til sparnaðar í lyfjaútgjöldum á ársgrundvelli sem nemur tæpum milljarði króna. Lyf lækka í verði til samræmis við niðurstöður verðsamanburðar við lyfjaverð annars staðar á Norðurlöndunum. Frá þessu er sagt í tilkynningu á vef lyfjagreiðslunefndar. Þar segir enn fremur:
„Í lyfjalögum er kveðið á um það markmið að lyfjakostnaði hér á landi skuli haldið í lágmarki. Á grundvelli þess er lyfjagreiðslunefnd falið að sjá til þess að lyfjaverð sé að jafnaði sambærilegt við verð í viðmiðunarlöndum á Evrópska efnahagssvæðinu, sem eru Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð, líkt og fram kemur í reglugerð um lyfjagreiðslunefnd nr. 353/2013.
Verðsamanburðurinn tekur til apótekslyfja og sjúkrahúslyfja. Verðsamanburður á apótekslyfjum byggist á meðalverði í viðmiðunarlöndunum fjórum en tekur mið af lægsta verði á sjúkrahúslyfjum í sömu löndum.
Lækkun á apótekslyfjum í kjölfar verðendurskoðunar Lyfjagreiðslunefndar tók gildi í maí síðastliðnum og er áætlað að sparnaðurinn nemi um 430 milljónum króna á ársgrundvelli. Þessi ávinningur skiptist á milli Sjúkratrygginga Íslands um 263 milljónir króna og um 167 milljónir króna hjá sjúklingum miðað við smásöluverð með virðisaukaskatti.
Lækkun á sjúkrahúslyfjum tók gildi 1. nóvember og er áætlað að sparnaður sem þar af leiðir verði um 525 milljónir króna á ársgrundvelli miðað við heildsöluverð með virðisaukaskatti þegar tillit hefur verið tekið til gildandi útboða.
Nærri 90% meiri ávinningur nú en fyrir tveimur árum
Umrædd endurskoðun lyfjagreiðslunefndar leiðir til ríflega 955 milljóna króna heildarsparnaðar á ársgrundvelli. Þetta er nærri 90% meiri sparnaður en náðist við sambærilega endurskoðun sem gerð var fyrir tveimur árum en þá sparaðist rúmlega hálfur milljarður króna. Viðbótarsparnaðurinn sem nú næst kemur einkum fram í sjúkrahúslyfjunum.
Sparnaður vegna apótekslyfja gæti orðið meiri
Reynslan hefur sýnt að lækkun á hámarksheildsöluverði frumlyfja og samheitalyfja hefur í för með sér ákveðin ruðningsáhrif með aukinni verðsamkeppni sem hafa áhrif á viðmiðunarverðskrá lyfjagreiðslunefndar og því er ekki ólíklegt að sparnaður vegna apótekslyfja geti jafnvel orðið meiri.“