Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á fuglseggjum og afurðum þeirra.
Með vísan til 65. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og til reglugerðar nr. 1185/2013 er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning fuglseggjum og afurðum þeirra fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2014.
Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollar | Magntollar | |
Tollskrárnr.: | kg | % | kr./kg | ||
38.000 | |||||
0407 | Fuglsegg, í skurn, ný varin skemmdum eða soðin: | ||||
Frjóegg til útungunar: | |||||
0407.1100 | Af hænsnum af tegundinni Gallus domestictus | 01.01.-30.06.14 | 0 | 143 | |
0407.1900 | Önnur | 01.01.-30.06.14 | 0 | 143 | |
Önnur fersk egg: | |||||
0407.2100 | Af hænsnum af tegundinni Gallus domesticus | 01.01.-30.06.14 | 0 | 143 | |
0407.2900 | Önnur | 01.01.-30.06.14 | 0 | 143 | |
0407.9000 | Önnur | 01.01.-30.06.14 | 0 | 143 | |
0408 | Fuglsegg, skurnlaus, og eggjarauða, nýtt, þurrkað, soðið í gufu eða vatni, mótað, fryst eða varið skemmdum með öðrum hætti, einnig með viðbættum sykri eða öðru sætiefni: | ||||
Eggjarauða: | |||||
0408.1100 | Þurrkuð | 01.01.-30.06.14 | 0 | 603 | |
Önnur: | |||||
0408.1901 | Gerilsneyddar eggjarauður með 7% saltinnihaldi, í 5 kg umbúðum eða stærri | 01.01.-30.06.14 | 0 | 160 | |
0408.1909 | Annars | 01.01.-30.06.14 | 0 | 160 | |
Annað: | |||||
0408.9100 | Þurrkað | 01.01.-30.06.14 | 0 | 603 | |
Annars: | |||||
0408.9901 | Soðin egg, í 10 kg umbúðum eða stærri | 01.01.-30.06.14 | 0 | 160 | |
0408.9909 | Annars | 01.01.-30.06.14 | 0 | 160 |
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum nr. 448/2012.
Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 15:00 þriðjudaginn 14. janúar 2014.