Hoppa yfir valmynd
4. febrúar 2014 Utanríkisráðuneytið

Norræna lífhagkerfinu hrundið úr vör

NordBio logo
nordbio_logo

Stærsta verkefni formennskuáætlunar Íslands í norrænu ráðherranefndinni, Norræna lífhagkerfinu NordBio,verður hrundið úr vör á morgun, miðvikudag, í Norræna húsinu í Reykjavík. Markmið NordBio er að draga úr sóun og auka sjálfbæra nýtingu lífauðlinda á Norðurlöndunum. Fimm verkefni áætlunarinnar verða kynnt en þau miða m.a. að því að efla  rannsóknir, nýsköpun og vöruþróun þannig að nýta megi afurðir með sjálfbærum hætti sem áður hafa verið ónýttar eða farið til spillis. Verkefnin taka  mið af hagsmunum samfélags og umhverfis og stuðla að uppbyggingu samkeppnishæfs atvinnulífs og nýjum aðferðum í menntun ungmenna.

Um 100 manns frá öllum Norðurlöndunum sækja þennan upphafsfund norræna lífhagkerfisins en undir það falla fimm verkefni sem unnin eru í samvinnu  íslenskra og  norrænnastofnana  Verkefnin eru; menntaverkefni Biophilia, verkefni um nýsköpun í norræna lífhagkerfinu, ERMOND, verkefni um viðnámsþrótt vistkerfa og hlutverk þeirra sem vörn gegn náttúruvá, Marina - verkefni um orkuskipti á sjó og WoodBio - verkefni um hlutverk viðarlífmassa í lífhagkerfinu.

Frekari upplýsingar um verkefnið er að finna hér:

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta