Greiðsluafkoma ríkissjóðs í janúar 2014
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir janúar 2014 liggur nú fyrir og gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda.
Handbært fé frá rekstri batnaði milli ára og var neikvætt um 9,1 ma.kr. samanborið við 10,1 ma.kr. 2013. Innheimtar tekjur hækkuðu um 9,5 ma.kr. milli ára en greidd gjöld jukust um 6,7 ma.kr. milli ára.