Skýrsla um þróun útflutnings á Norðurlöndum
Í skýrslunni, Nordic Exports of Goods and Exporting Enterprises, sem unnin var af hagstofum Norðurlandanna, er greint frá mikilvægustu útflutningsmörkuðum Norðurlandanna, helstu útflutningsvörum og því hvernig Norðurlöndum gengur að fóta sig á nýjum mörkuðum. Í skýrslunni kemur m.a. fram að mikilvægustu útflutningsvörur Norðurlanda eru olíuafurðir og fiskur, Svíþjóð er stærsti útflytjandi Norðurlanda en Ísland er háðast útflutningi. Þá kemur fram störfum hjá norrænum útflutningsfyrirtækjum fækkaði á tímabilinu 2008-2012.
Skýrsluna í heild má sækja hér (á ensku).