Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja lætur af störfum
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra og Gunnar K. Gunnarsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja hafa gert með sér samkomulag um starfslok Gunnars.
Ráðherra hefur falið Valbirni Steingrímssyni, framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunarinnar Blönduósi að gegna stöðu forstjóra tímabundið þar til fyrirhugaðar sameiningar heilbrigðisstofnana í heilbrigðisumdæmi Suðurlands koma til framkvæmda. Samkvæmt samkomulaginu mun Gunnar verða Valbirni til aðstoðar til að byrja með.
Kristján Þór þakkar Gunnari fyrir störf hans á liðnum árum.