Jafnt hlutfall kynja í nefndum þriðja árið í röð
Hlutfall karla og kvenna í nefndum og ráðum á vegum velferðarráðuneytisins var nánast jafnt árið 2013, þriðja árið í röð. Ráðuneyti skulu birta upplýsingar um hlut kynja í nefndum og ráðum samkvæmtþingsályktun um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára sem samþykkt var á Alþingi 19. maí 2011 og eru upplýsingar velferðarráðuneytisins birtar hér.
Samkvæmt 15. gr. laga nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, skal við skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga gæta þess að hlutfall kynjanna sé sem jafnast og að hlutur hvors kyns sé ekki minni en 40% þegar fulltrúar eru fleiri en þrír.
Í efri töflunni hér að neðan má sjá hlutföll karla og kvenna í öllum starfandi nefndum, ráðum og stjórnum á vegum ráðuneytisins og hvernig skiptingin var síðastliðin þrjú ár. Hlutföllin eru nær alveg jöfn og litlar breytingar hafa orðið milli ára.
Í neðri töflunni sjást kynjahlutföllin í þeim nefndum sem skipaðar hafa verið ár hvert. Þar kemur fram að hlutur kvenna fer heldur vaxandi í nýjum nefndum sem skipaðar voru árið 2013. Konur voru þá 53,2% skipaðra fulltrúa en karlar 46,8%.
Samtals fjöldi fulltrúa |
|||||
Ár | Konur | Karlar | Heild | Hlutfall kvenna | Hlutfall karla |
2011 | 405 | 379 | 784 | 51,7% | 48,3% |
2012 | 419 | 391 | 810 | 51,7% | 48,3% |
2013 | 421 | 401 | 822 | 51,2% | 48,8% |
Samtals fjöldi í nýjum nefndum |
|||||
Ár | Konur | Karlar | Heild | Hlutfall kvenna | Hlutfall karla |
2011 | 137 | 136 | 273 | 50,2% | 49,8% |
2012 | 104 | 97 | 201 | 51,7% | 48,3% |
2013 | 141 | 124 | 265 | 53,2% | 46,8% |