Samþætting öldrunarþjónustu í Stykkishólmi
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem gera á tillögur um samstarf Stykkishólmsbæjar, Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og velferðarráðuneytisins með það að markmiði að samhæfa stofnanaþátt öldrunarþjónustu á svæðinu.
Starfshópnum er ætlað að styðjast við skýrslur og samantektir sem unnar hafa verið á síðustu misserum varðandi endurskipulagningu öldrunarþjónustu í Stykkishólmi. Þess er jafnframt vænst að tillögur starfshópsins taki mið af því að samþætting öldrunarþjónustu styrki alla starfsemi Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í Stykkishólmi.
Formaður starfshópsins er Jóhanna F. Jóhannsdóttir, tilnefnd af Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Aðrir nefndarmenn eru:
- Lárus Ástmar Hannesson, tilnefndur af Stykkishólmsbæ
- Sturla Böðvarsson, án tilnefningar
Varamenn
- Hrafnhildur Jónsdóttir, tilnefnd af Heilbrigðisstofnun Vesturlands
- Guðlaug Ágústsdóttir, tilnefnd af Stykkishólmsbæ.