Ríflega 350 milljóna framlag til framkvæmda á ferðamannastöðum í sumar
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun ríflega 350 milljóna króna fjárframlag til uppbyggingar og verndaraðgerða á ferðamannastöðum í sumar. Fjármunirnir verða notaðir til verkefna sem talin eru brýn vegna verndunar eða öryggissjónarmiða.
Umhverfis- og auðlindaráðherra og Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hafa í samstarfi við forsætisráðuneytið og stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða sett saman lista yfir staði í umsjón og eigu ríkisins og sveitarfélaga þar sem talið er brýnt að ráðast í aðgerðir á í sumar vegna aukins ferðamannastraums til landsins. Um er að ræða framkvæmdir á gönguleiðum/göngustígum sem liggja undir skemmdum. Framkvæmdirnar fela m.a. í sér að skipta um jarðvegsefni og verja gönguleiðir fyrir skemmdum svo hægt sé að beina ferðamönnum á þær. Þá þarf víða að koma upp öryggisgrindverkum og pöllum við fossa og hveri til að tryggja öryggi ferðamanna en talið er að slysahættan sé veruleg á mörgum þessara staða.
Er ljóst að framkvæmdirnar munu hafa jákvæð áhrif á atvinnuástand byggða og dreifast vel yfir landið allt, með tilliti til staðsetningar helstu ferðamannastaða. Meðal annars er um að ræða endurnýjun á útsýnispalli við Gullfoss, nýjan göngustíg við Dettifoss og viðhald á gönguleiðum í Þórsmörk.
Styrkjum til framangreindra verkefna verður úthlutað úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og mun sjóðurinn ásamt Ferðamálastofu annast umsjón og eftirlit með úthlutun og framgangi verkefna.