Niðurstöður um úthlutun á EFTA tollkvóta
Þriðjudaginn 3. júní 2014 rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á nautakjöti úr vörulið ex0210.xxxx og ostum úr vörulið 0406.xxxx fyrir tímabilið júlí 2014 – júní 2015.
Samtals bárust umsóknir frá sex aðilum um tollkvótann. Til útboðs kom á tollkvótum á báðum vöruliðum þar sem umsótt magn var meira en það magn sem í boði var.
Samtals bárust þrjú gild tilboð í tollkvótann.
Þrjú tilboð bárust um innflutning á nautakjöti, samtals 23.000 kg á meðalverðinu 5 kr./kg. Hæsta boð var 10 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 10.000 kg á meðalverðinu 10 kr./kg.
Þrjú tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum, samtals 14.500 kg á meðalverðinu 46 kr./kg. Hæsta boð var 150 kr./kg en lægsta boð var 5 kr./kg. Tilboðum var tekið frá á þremur fyrirtækjum um innflutning á 14.500 kg á meðalverðinu 46 kr./kg.
Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:
Nautakjöt fyrir tímabilið júlí 2014 – júní 2015
Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
10.000 | Aðföng hf |
Ostur fyrir tímabilið júlí 2014 – júní 2015
Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
5.000 | Aðföng hf |
5.000 | Innnes ehf |
4.500 | Íslenskar matvörur ehf |
Reykjavík, 11. júní 2014.