Ríkisstjórnin tekur fyrir stöðuskýrslu um einfaldara regluverk
Á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudaginn var tekin fyrir stöðuskýrsla um einföldun gildandi regluverks. Stjórnvöld hafa lagt áherslu á að einfalda regluverk og er það verkefni sérstaklega tekið upp í núverandi stjórnarsáttmála. Jafnframt samþykkti ríkisstjórnin 24. maí 2013 aðgerðaáætlun um einfaldara og skilvirkara regluverk fyrir atvinnulífið.
Í samræmi við aðgerðaáætlunina hafa forsætisráðuneytið og ráðgjafarnefnd um opinberar eftirlitsreglur tekið saman stöðuskýrslu um einföldun gildandi regluverks og gefið út handbók fyrir stjórnvöld. Í stöðuskýrslunni er farið yfir reynsluna af starfi ráðuneytanna við einföldun regluverks og hún borin saman við reynslu annarra þjóða. Þá eru settar fram tillögur í átta liðum um forgangsverkefni á þeim vetri sem nú fer í hönd.
Tillögurnar eru:
- Unnið verði að því að setja upp eina rafræna gátt varðandi leyfisveitingar. Þannig geti til dæmis fyrirtæki gengið að öllum upplýsingum er varða opinberar kröfur til tiltekinnar atvinnustarfsemi á einum stað og átt rafræn samskipti við stjórnvöld.
- Handbók um einföldun regluverks sem nú liggur fyrir verði gefin út og nýtt í einföldunarstarfi stjórnvalda.
- Valið verði tiltekið svið atvinnulífs til að skoða í kjölfar þeirrar skoðunar sem fram fór á reglum um ferðaþjónustu síðasta vetur.
- Sett verði stefna um hvenær þörf sé á að leyfisbinda atvinnustarfsemi. Hugmyndin er sú að oft kunni að vera nægilegt að fyrirtæki tilkynni starfsemi til stjórnvalda í stað þess að sækja um sérstakt leyfi.
- Mótuð verði viðmið um starfshætti eftirlitsstofnana og stjórnskipulag. Þessi vinna er nú þegar í farvegi hjá sérstökum vinnuhópi ríkisstjórnarinnar.
- Eflt verði það mat á áhrifum og samráð sem á sér stað í aðdraganda laga- og reglusetningar. Verið er að endurskoða handbók um lagasetningu í þessu skyni. Einnig er til skoðunar að setja upp einn samráðsvef fyrir stjórnvöld.
- Ráðgjafarnefnd um opinberar eftirlitsreglur fái til umsagnar frumvörp að lögum og drög að reglugerðum sem hafa umtalsverð áhrif á atvinnulífið.
- Tekin verði næstu skref til innleiðingar á svokallaðri jafnvægisreglu (ein inn, ein út). Þannig verði teknar saman árlega tölfræðilegar upplýsingar um þróun reglubyrði atvinnulífsins.
Á ríkisstjórnarfundinum var verkum skipt á milli ráðuneytanna við eftirfylgni með þessum tillögum.
- Einföldun gildandi regluverks - stöðuskýrsla (september 2014)
- Handbók um einföldun regluverks (september 2014)