Hoppa yfir valmynd
2. nóvember 2014 Utanríkisráðuneytið

Heita stuðningi við væntanlegt samkomulag í loftslagsmálum 

Gunnar Bragi og Figureres

Christiana Figueres, framkvæmdastýra rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál, átti í gær fundi með Gunnari Braga Sveinssyni, utanríkisráðherra og Sigurði Inga Jóhannssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra. Figueres er hér á landi til að taka þátt í Arctic Circle ráðstefnunni, sem fram fer um helgina.

Figueres lagði áherslu á að aðildarríki leggi fram metnaðarfullar áætlanir um minnkun á losun í yfirstandandi samningaviðræðum um nýtt hnattrænt samkomulag, sem stefnt er að því að undirrita í París á næsta ári. Ráðherrarnir hétu stuðningi Íslands við væntanlegt Parísarsamkomulag og að Ísland hygðist sýna metnað í loftslagsmálum.

Fyrirhugað er að Parísarsamkomulagið taki gildi árið 2020 og setji markmið fyrir ríki heims til 2030, en Figueres lagði áherslu á að nýr samningur verði að marka skýra stefnu í loftslagsmálum til lengri framtíðar.

Ráðherrarnir undirstrikuðu mikilvægi umhverfismála og að Ísland hefði það markmið að vera öðrum þjóðum fyrirmynd, m.a. með nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa. Einnig væri binding kolefnis úr andrúmslofti með skógrækt og landgræðslu mikilvægur þáttur í loftslagsstefnu Íslands og Ísland miðlaði þróunarríkjum af reynslu sinni á þessum sviðum í gegnum Jarðhitaskóla og Landgræðsluskóla Háskóla SÞ, sem starfræktir eru hér á landi.

Minntust þeir á ræðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra á allsherjarþingi SÞ í september sl.í því samhengi. Ísland stefndi að því að hætta notkun jarðefnaeldsneytis; slíkt væri þegar raunin varðandi orkuframleiðslu til rafmagns og hitunar, en vinna þyrfti að þessu markmiði í samgöngum og fiskveiðum.

Framkvæmdastýran heimsótti Hellisheiðarvirkjun og kynnti sér niðurstöður nýrrar rannsóknar um kolefnisbindingu í jarðvegi en rannsóknin sem að miklum hluta var unnin af íslenskum vísindamönnum hefur hlotið heimsathygli.

Einnig hitti hún nemendur Jarðhitaskóla og Jafnréttisskóla SÞ og fræddist um starfsemi þeirra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta