Opið fyrir umsóknir um styrki til rekstrar félagasamtaka á sviði umhverfismála
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir til umsóknar rekstrarstyrki til frjálsra félagasamtaka sem starfa á málefnasviði ráðuneytisins. Sækja skal um á rafrænu formi á
umsóknarvef Stjórnarráðsins og er umsóknarfrestur til kl. 16:00 15. desember 2014.
Markmið styrkjanna er að stuðla að opnum og frjálsum skoðanaskiptum um umhverfis- og auðlindamál og að efla almenna vitund um gildi umhverfismála.
Umsækjendur rekstrarstyrkja ráðuneytisins þurfa að uppfylla skilyrði sem tíunduð eru í r eglum um almenna rekstrarstyrki til frjálsra félagasamtaka sem starfa að umhverfismálum.
M.a. þurfa samtökin að vera opin fyrir almennri aðild, þau skulu ekki starfa í hagnaðarskyni, hafa að lágmarki 30 félagsmenn, hafa opið og endurskoðað reikningshald og taka saman ársskýrslur. Loks þarf eigin fjáröflun að standa undir a.m.k. helmingi kostnaðar vegna almennrar starfsemi samtakanna.
Þá er í reglunum tíunduð viðmið sem höfð eru til hliðsjónar við úthlutun styrkjanna.
Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins.
- Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjenda auk þess sem hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli frá
- Umsækjendur skrá sig inn og velja
umhverfis- og auðlindaráðuneyti undir flipanum
Eyðublöð.
- Úthlutað er einu sinni á ári og eigi síðar en 31. janúar ár hvert.
Nánari upplýsingar veitir Sóley Dögg Grétarsdóttir í síma 545 8600 eða í tölvupósti á netfangið [email protected].