Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2015
Mánudaginn 24. nóvember 2014 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2015.
Tvær umsóknir bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 2.100 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 2.200 stk. Úthlutað án útboðs.
Tvær umsóknir bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9093) samtals 2.500 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 3.000 stk. Úthlutað var án útboðs.
Eitt tilboð barst um innflutning á rósum (0603.1100) samtals 2.000 stk., á meðalverðinu 40 kr./stk. Hæsta boð var 40 kr./stk. en lægsta boð var 40 kr./stk. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 2.000 stk. á meðalverðinu 40 kr./stk. Úthlutað var án útboðs.
Eitt tilboð barst um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 9.000 stk., á meðalverðinu 9 kr./stk. Hæsta boð var 15 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboði var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 9.000 stk. á meðalverðinu 9 kr./stk.
Tvær umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 100.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 166.250 stk. Úthlutað var án útboðs.
Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:
Blómstrandi pottaplöntur janúar - júní 2014
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
1.000 | Grænn markaður ehf |
1.100 | Samasem ehf |
Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2014
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
1.000 | Grænn markaður ehf |
1.500 | Samasem ehf |
Rósir janúar – júní 2014
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
2.000 | Samasem ehf |
Tryggðablóm janúar – júní 2014
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
9.000 | Samasem ehf |
(Annars) afskorin blóm janúar – júní 2014
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
50.000 | Grænn markaður ehf |
50.000 | Samasem ehf |
Reykjavík, 16. desember 2014