Vel sóttur fundur verkefnisstjórnar
Upptaka af kynningarfundi verkefnisstjórnar rammaáætlunar, sem haldinn var sl. fimmtudag, er nú aðgengileg á www.ramma.is.
Fundurinn var haldinn í Þjóðminjasafni Íslands og var vel sóttur. Þar gerði formaður verkefnisstjórnar grein fyrir vinnuferlinu við mat verkefnisstjórnar, stöðu rammaáætlunar og viðfangsefnum framundan. Að því loknu svaraði verkefnisstjórn fyrirspurnum úr sal en fundarstjóri var Þóra Arnórsdóttir.