Fundur um flugöryggismál í einka- og frístundaflugi 18. febrúar
Öryggismál í einka- og frístundaflugi er efni fundar um flugöryggismál sem innanríkisráðuneytið stendur fyrir í samvinnu við Samgöngustofu, Rannsóknarnefnd samgönguslysa og Flugmálafélag Íslands. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 18. febrúar milli klukkan 9 og 12.45 á Icelandair hótelinu Reykjavík Natura.
Á fundinum verða kynntar reglur og umgjörð um almannaflug sem byggjast á innleiðingu á reglum EASA, Flugöryggisstofnunar Evrópu. Þá verður fjallað um þátt opinberra aðila í eflingu öryggis í almannaflugi en auk ráðuneytisins koma að slíkum málum bæði Samgöngustofa og Rannsóknarnefnd samgönguslysa svo og Flugmálafélag Íslands. Tilgangur fundarins er að auka skilning á reglum og innleiðingu þeirra í almannaflugi með samtali hins opinbera og grasrótarinnar.
Fundurinn er ætlaður flugrekendum, flugmönnum, flugnemum, fulltrúum flugskóla, rekstraraðila flugvalla og flugtengdrar starfsemi, starfsfólki ráðuneyta, eftirlitsstofnana og annarra sem fjalla um flug og flugtengda starfsemi.
Dagskrá fundarins:
Setning fundar | 09:00-09:10 | Fulltrúi innanríkisráðuneytisins |
Hlutverk Samgöngustofu | 09:10-09:25 | Fulltrúi Samgöngustofu |
Kynning á EASA og hlutverk í tengslum við almannaflug – „General Aviation Roadmap“ |
09:25-10:30 | Michel Masson, fulltrúi EASA |
Spurningar | 10:30-11:00 | |
Kaffihlé | 11:00-11:20 | |
Alvarleg flugatvik og flugslys | 11:20-11:40 | Þorkell Ágústsson, rannsóknarnefnd samgönguslysa |
Tilkynningarskylda í almannaflugi | 11:40-12:00 | Sólveig Ragnarsdóttir, Samgöngustofu |
Hlutverk Flugmálafélags Íslands | 12:00-12:20 | Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélagsins |
Spurt og svarað + samantekt + fundi slitið | 12:20-12:45 | Friðþór Eydal, talsmaður Isavia |