Innanríkisráðherra skipar í ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Ólöf Nordal innanríkisráðherra hefur skipað fulltrúa í ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Formaður nefndarinnar er Guðný Sverrisdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri í Grýtubakkahreppi, sem skipuð er án tilnefningar og varaformaður skipaður með sama hætti er Ólafur Adolfsson, bæjarfulltrúi í Akraneskaupstað.
Með breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 sem tók gildi 16. desember síðastliðinn, er fulltrúum í ráðgjafarnefndinni fjölgað úr fimm í sjö. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur tilnefnt fjóra fulltrúa til setu í nefndinni en tilnefnir nú sex fulltrúa og jafn marga til vara.
Samkvæmt tilnefningu stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur ráðherra því einnig skipað eftirtalda aðalmenn og varamenn í ráðgjafarnefndina:
Aðalmenn:
- Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
- Karen E. Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogsbæ
- Bjarni Jónsson, sveitarstjórnarfulltrúi í Sveitarfélaginu Skagafirði
- Sigríður Huld Jónsdóttir, bæjarfulltrúi í Akureyrarkaupstað
- Valdimar O. Hermannsson, bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð
- Ásgerður Gylfadóttir, bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Hornafirði
Varamenn:
- Ellý Katrín Guðmundsdóttir, borgarritari í Reykjavíkurborg
- Bryndís Haraldsdóttir, bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ
- Kristján Andri Guðjónsson, bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ
- Sveinn Pálsson, sveitarstjóri í Dalabyggð
- Soffía Helgadóttir, bæjarfulltrúi í Norðurþingi
- Ólafur Þór Ólafsson, bæjarfulltrúi í Sandgerðisbæ
Starfstími nefndarinnar er fram að sveitarstjórnarkosningum 2018.
Fráfarandi ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga eru færðar þakkir fyrir vel unnin störf.