Hoppa yfir valmynd
13. apríl 2015 Forsætisráðuneytið

24. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Áframhaldandi umræða um forgangsatriði
  3. Önnur mál

Fundargerð

24. fundur – haldinn mánudaginn 13. apríl 2015, kl. 9.00, í Hannesarholti, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir og Valgerður Bjarnadóttir. Róbert Marshall, sem tilnefndur hefur verið til setu í nefndinni af hálfu Bjartrar framtíðar, og Valgerður Gunnarsdóttir höfðu boðað forföll.

Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis og ritari nefndarinnar.

Formaður setti fundinn og stýrði honum.

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 23. fundar, sem haldinn var mánudaginn 30. mars 2015, var send nefndarmönnum með tölvupósti 11. apríl. Fundargerðin var samþykkt án athugasemda.

2. Áframhaldandi umræða um forgangsatriði

2.1. Þjóðaratkvæðagreiðslur á grundvelli undirskrifta

Haldið var áfram umfjöllun um þjóðaratkvæðagreiðslur á grundvelli undirskrifta, sbr. einnig umræður á 17. og 20.-23. fundi, og leitast við að skýra betur um hvað er sátt, hvar/hvað ber á milli og hvort/hvernig hægt sé að nálgast þar sameiginlega niðurstöðu sem nánari útfærsla verði byggð á.

Unnið verður úr umræðum fundarins og ný drög (IV) send nefndarmönnum. Gert er ráð fyrir að sá texti verði grundvöllur vinnu við drög að tillögum, eftir atvikum með aðkomu sérfræðinga, sbr. vinnuáætlun á 19. fundi.

2.2. Framsal valdheimilda í þágu alþjóðasamvinnu

Haldið var áfram umfjöllun um framsal valdheimilda í þágu alþjóðasamvinnu, sbr. einnig umræður á 18. og 22.-23. fundi, og leitast við að skýra betur um hvað er sátt, hvar/hvað ber á milli og hvort/hvernig hægt sé að nálgast þar sameiginlega niðurstöðu sem nánari útfærsla verði byggð á.

Unnið verður úr umræðum fundarins og ný drög (III) send nefndarmönnum. Gert er ráð fyrir að sá texti verði grundvöllur vinnu við drög að tillögum, eftir atvikum með aðkomu sérfræðinga, sbr. vinnuáætlun á 19. fundi.

2.3. Umhverfisvernd

Haldið var áfram umfjöllun um umhverfisvernd, sbr. einnig umræður á 18.-20. og 23. fundi, og leitast við að skýra betur um hvað er sátt, hvar/hvað ber á milli og hvort/hvernig hægt sé að nálgast þar sameiginlega niðurstöðu sem nánari útfærsla verði byggð á.

Gert er ráð fyrir að fyrirliggjandi texti (drög I) verði grundvöllur vinnu við drög að tillögum, eftir atvikum með aðkomu sérfræðinga, sbr. vinnuáætlun á 19. fundi.

2.4. Auðlindir

Haldið var áfram umfjöllun um auðlindir og þjóðareign, sbr. einnig umræður á 17., 21. og 23.  fundi, og leitast við að skýra betur um hvað er sátt, hvar/hvað ber á milli og hvort/hvernig hægt sé að nálgast þar sameiginlega niðurstöðu sem nánari útfærsla verði byggð á.

Unnið verður úr umræðum fundarins og ný drög (II) send nefndarmönnum.

3. Önnur mál

Ekkert var rætt undir þessum lið.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11.20.

SG skrifaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta