Heimsóknir í stofnanir halda áfram
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur á undanförnum vikum og mánuðum haldið áfram heimsóknum sínum í stofnanir ráðuneytisins.
Á þeim tíma hefur ráðherra heimsótt Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR), Vatnajökulsþjóðgarð, Landmælingar Íslands, Mannvirkjastofnun, Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, Landgræðslu ríkisins og Náttúrurannsóknarstöðina við Mývatn í aðsetri hennar í Öskju í Reykjavík. Þá hefur ráðherra fundað með framkvæmdastjóra PAME, vinnuhóps sem heyrir undir Norðurskautsráðið auk framkvæmdastjóra landshlutaverkefna í skógrækt, sem eru fimm talsins.
Áður hafði ráðherra kynnt sér starfsemi Umhverfisstofnunar, Úrvinnslusjóðs, Náttúrufræðistofnunar Íslands, Veðurstofu Íslands og Skipulagsstofnunar.
Heimsóknirnar hafa reynst ákaflega gagnlegar og mikilvægar fyrir ráðherra til að fá yfirlit yfir starfsemi þessara stofnana og hitta fyrir starfsfólk þeirra.
Myndir úr heimsóknunum má sjá hér að neðan.