Hoppa yfir valmynd
19. maí 2015 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Tekið á móti Chen Lei, vatnamálaráðherra Kína

Frá heimsókn ráðherrans

Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra átti fund með Chen Lei, vatnamálaráðherra Kína fyrr í þessari viku. Meginefni fundarins voru málefni ferskvatns á Íslandi og í Kína.

Fundurinn var liður í ferð ráðherrans til landsins í því skyni að kynna sér vatnamál, þar á meðal vatnsaflsvirkjanir og samþættingu verndar og nýtingar vatns á Íslandi. Þá kynnti umhverfis- og auðlindaráðherra fyrir honum helstu verkefni ráðuneytisins auk þess að fara yfir hvernig stjórn vatnamála er háttað hér á landi.

Að fundi loknum fór kínverski ráðherrann og sendinefnd hans í kynnisferð í Sogsvirkjanir og Þingvallaþjóðgarð.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta