Einfalt og vandað regluverk: Hvernig má tryggja árangur til lengri tíma?
Forsætisráðuneytið efnir í samstarfi við OECD til alþjóðlegs málþings um einföldun regluverks að morgni 18. júní næstkomandi á Hótel Hilton Nordica í Reykjavík. Stefna OECD um einfalt og vandað regluverk liggur fyrir í tilmælum til aðildarríkjanna frá 2012. Þar er til dæmis lögð áhersla á samráð, mat á áhrifum og reglulegt endurmat löggjafar. Á málþinginu verður fjallað um hvernig megi tryggja að þessi stefna nái í raun fram að ganga til lengri tíma. Felst svarið í því að festa vandaða löggjafarhætti í lög eða stjórnaskrá? Hvaða hlutverki gegna ráðuneyti og löggjafarþing í þessu sambandi? Hvaða gögn og upplýsingar eru nauðsynleg til að fylgjast með árangri?
Forsætisráðherra mun flytja inngangserindi um aðgerðir íslenskra stjórnvalda til að einfalda regluverk sem hefur áhrif á atvinnulífið. Aðrir ræðumenn koma frá OECD, Evrópuþinginu og ýmsum aðildarríkjum OECD eins og Kanada, Ástralíu og Bretlandi.
Málþinginu lýkur með hádegisverðarfundi þar sem sérstaklega verður fjallað um samspil ráðuneyta og Alþingis í löggjafarstarfi.
Málþingið er opið öllum, skráningarfrestur er til 15. júní næstkomandi.
- Dagskrá málþingsins og skráningarupplýsingar
- Tilmæli OECD frá 2012
- Vefur OECD um einfalt og vandað regluverk
Nánari upplýsingar um vandaða lagasetningu má finna hér á vefnum.