Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið júlí - desember 2015
Mánudaginn 1. júní 2015 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna seinni hluta ársins 2015.
Þrjú tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 3.350 stk. á meðalverðinu 90 kr./stk. Hæsta boð var 125 kr./stk. en lægsta boð var 40 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 1.650 stk. á meðalverðinu 118 kr./stk.
Þrjú tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9093) samtals 3.860 stk. á meðalverðinu 94 kr./stk. Hæsta boð var 135 kr./stk. en lægsta boð var 40 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.160 stk. á meðalverðinu 119 kr./stk.
Eitt tilboð barst um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 6.500 stk., á meðalverðinu 9 kr./stk. Hæsta boð var 16 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboði var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 9.000 stk. á meðalverðinu 9 kr./stk.
Þrjár umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 80.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 118.750 stk. Úthlutað var án útboðs.
Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:
Blómstrandi pottaplöntur júlí - desember 2015
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
700 | Garðheimar Gróðurvörur ehf |
950 | Húsasmiðjan Blómaval ehf |
Aðrar pottaplöntur júlí - desember 2015
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
700 | Garðheimar Gróðurvörur ehf |
1.460 | Húsasmiðjan Blómaval ehf |
Tryggðablóm júlí - desember 2015
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
6.500 | Samasem ehf |
(Annars) afskorin júlí - desember 2015
Magn (stk) | Tilboðsgjafi |
6.000 | Garðheimar Gróðurvörur ehf |
24.000 | Grænn markaður ehf |
50.000 | Samasem ehf |
Reykjavík, 4. júní 2015