Umsókn um kosningarrétt íslenskra ríkisborgara sem búsettir eru erlendis
Íslenskir ríkisborgarar, sem átt hafa lögheimili hér á landi en sest hafa að erlendis eiga kosningarrétt við alþingiskosningar, forsetakosningar og þjóðaratkvæðagreiðslur á Íslandi í átta ár frá því þeir fluttu lögheimili sitt frá landinu, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag. Að þeim tíma liðnum fellur kosningarrétturinn niður nema sérstaklega sé sótt um að halda honum.
Því þurfa þeir sem vilja vera á kjörskrá en fluttu af landi brott fyrir 1. desember 2007 og hafa verið búsettir erlendis síðan, að senda umsókn til Þjóðskrár Íslands fyrir 1. desember 2015, til þess að halda kosningarrétti. Kosningarrétturinn gildir þá til 1. desember 2019.
Umsókn skal senda Þjóðskrá Íslands og má finna umsóknareyðublöð á vef stofnunarinnar. Frekari upplýsingar um kosningarréttinn má finna á vef Þjóðskrár Íslands.
Kosningarréttur miðast við 18 ára aldur. Reglur þessar gilda ekki um kosningar til sveitarstjórna.
Sé umsókn fullnægjandi verður umsækjandi tekinn á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem hann átti síðast lögheimili á Íslandi við þær alþingiskosningar, forsetakosningar og þjóðaratkvæðagreiðslur sem fram fara á tímabilinu.