Styrkir til verkefna lausir til umsóknar
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til verkefna á sviði umhverfis- og auðlindamála og er umsóknarfrestur til kl. 16:00, 10. nóvember 2015. Skila skal inn umsóknum á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, ásamt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og velferðarráðuneyti, úthlutar styrkjum til félaga, samtaka og einstaklinga af safnliðum ráðuneyta sem ákvarðaðir eru af Alþingi í fjárlagagerð. Fer ákvörðun um framlag til einstakra málaflokka því eftir samþykki Alþingis í fjárlögum 2016.
Styrkjum er einungis úthlutað til verkefna sem falla undir málefnasvið ráðuneytanna að svo miklu leyti sem þau falla ekki undir lögbundna sjóði eða samninga. Því er mikilvægt að umsækjendur kynni sér vel hvaða ráðuneyti ber ábyrgð á þeim málaflokki sem verkefni umsækjanda um styrk fellur undir. Verkefni eru einungis styrkhæf í einu ráðuneyti og áskilja ráðuneyti sér rétt til að framsenda umsóknir til viðkomandi ráðuneytis falli verkefni betur að málaflokki í öðru ráðuneyti.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið veitir styrki til að styðja við verkefni á vegum aðila utan ríkisstofnana sem starfa á verkefnasviði ráðuneytisins.
Minnt er á að hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina eða eins og kveðið er á um í samkomulagi vegna fyrri styrkveitinga.
Upplýsingar um mat á umsóknum er að finna í 5. gr. úthlutunarreglna umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.
Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins.
Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjenda auk þess sem hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli frá Þjóðskrá.
Umsækjendur skrá sig inn og velja umhverfis- og auðlindaráðuneyti undir flipanum Eyðublöð.
Úthlutað er einu sinni á ári og eigi síðar en 31. janúar ár hvert.
Nánari upplýsingar veitir Sóley Dögg Grétarsdóttir í síma 545 8600 eða í tölvupósti á netfangið [email protected].
Umsóknarfrestur vegna rekstrarstyrkja til félagasamtaka sem starfa á sviði umhverfis- og auðlindamála verður auglýstur síðar.