Hoppa yfir valmynd
8. desember 2015 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á blómum.

Með vísan til 65. gr. og 65. gr. A, búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar nr. 1091/2015, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutningsmagn blóma sem sótt skal um í stykkjatölu fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2016.

Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Tollskrárnr.: stk. % kr./stk.
Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar:
0602.9091 Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna 01.01.-30.06.16 2.200 30 0
Aðrar:
0602.9093 Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna 01.01.-30.06.16 3.000 30 0
Lifandi:
0603.1100 Rósir 01.01.-30.06.16 2.000 30 0
0603.1400 Tryggðablóm (Chrysanthemums) 01.01.-30.06.16 9.000 30 0
0603.1909 Annars (afskorin blóm) 01.01.-30.06.16 166.250 30 0

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 15:00 þriðjudaginn 15. desember 2015.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta