Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á ostum frá Noregi.
Með vísan til 65. gr. A búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar nr. 1092/2015 er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á smurostum frá Noregi og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 31. desember 2016.
Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollur | Magntollur | |
Úr tollskrárnr.: | kg | % | kr./kg | ||
0406.3000 | Smurostur | 01.01.-31.12.16 | 13.000 | 0 | 0 |
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar.
Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum nr. 448/2012.
Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 15:00 miðvikudaginn 16. desember 2015.