Niðurstöður umsókna varðandi úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi, fyrir tímabilið janúar – desember 2016
Miðvikudaginn 16. desember 2015 rann út umsóknarfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á smurostum frá Noregi, fyrir tímabilið janúar – desember 2016, samtals 13.000 kg, sbr. reglugerð nr. 1092/2015.
Ein umsókn barst um innflutning á smurostum frá Noregi, (0406.3000) samtals 5.000 kg. og náðu umsóknir ekki tilteknu magni sem í boði var eða 13.000 kg. Úthlutað var án útboðs.
Smurostar frá Noregi
Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
5.000 | Íslenskar matvörur ehf |