Nýtt námskeið um kynjaða fjárhagsáætlunargerð
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands býður upp á nýtt námskeið um kynjaða fjárhagsáætlanagerð.
Kynjuð hagstjórn er almennt skilgreind sem samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða við fjárhagslega áætlanagerð með það að markmiði að stuðla að auknu jafnrétti kynjanna. Undanfarin ár hafa opinberir aðilar á Íslandi verið að tileinka sér kynjaða fjárlagagerð til að stuðla að í senn kynjajafnrétti og réttlátari dreifingu gæða og fjármuna. Formleg innleiðing aðferðarinnar hófst hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu árið 2009 og ný lög um opinber fjármál frá 2015 kveða á um að gerð frumvarps til fjárlaga skal taka mið að kynjaðri fjárlagagerð. Meðal sveitarfélaga hefur Reykjavíkurborg gengið lengst í að innleiða aðferðina, en relgur borgarinnar kveða á um að fjárhags- og starfsáætlunargerð skal byggjast á kynjaðri fjárhagsáætlunargerð.
Markmið námskeiðisins er að auka þekkingu þátttakenda á hugmyndafræði og aðferðarfræði kynjaðrar fjárhagsáætlunargerðar og færni við að beita aðferðum hennar við áætlunargerð. Í því felst að greina kynjaáhrif útgjalda og/eða þjónustu sem veitt er, endurmóta stefnumið og skiptingu fjármagns sem og að flétta kynja- og jafnréttissjónarmiðum inn í öll ferli.
Markhópur: Stjórnendur, millistjórnendur og sérfræðingar hjá opinberum stofnunum og hjá sveitarfélögum.
Á námskeiðinu er fjallað um og farið í:
- Hugmyndafræði kynjaðrar fjáhagsáætlunargerðar
- Stöðu karla og kvenna á hinum ýmsu sviðum samfélagsins
- Aðferðarfræði kynjaðrar fjáhagsáætlunargerðar
- Aðferðafræði og reynslu Reykjavíkurborgar af kynjaðri fjárhags- og starfsáætlunargerð
- Aðferðafræði og reynslu ríkisins af kynjaðri hagstjórn og fjárlagagerð
- Æfingar við að beita aðferðum kynjaðrar fjárhagsáætlunargerðar
Ávinningur:
- Þekking á undirstöðum kynjaðrar fjáhagsáætlunargerðar
- Færni í að greina kynjaáhrif útgjalda og/eða þjónustu sem veitt er
- Færni í að beita aðferðum kynjaðrar fjáhagsáætlunargerðar
- Aukin þekking á leiðum til að draga úr misrétti og bæta nýtingu fjármuna
Umsjón um námskeiðinu: Finnborg Salome Steinþórsdóttir frá Stjórnmálafræðideild HÍ og Lára Rúnarsdóttir frá Reykjavíkurborg, en námskeiðið var þróað í samvinnu Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála og Reykjavíkurborgar.
Finnborg Salome Steinþórsdóttir er doktorsnemi og stundakennari við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Hún starfar í GARCI- verkefninu sem er samstarfsverkefni sjö háskólastofnanna í Evrópu og styrkt af sjöundu rammaáætlun Evrópusambandsins. Í doktorsrannsókn sinni er Finnborg að skoða leiðir til þess að beita kynjaðri fjárhagsáætlunargerð í háskólasamfélaginu.
Lára Rúnarsdóttir er með MA gráðu í kynjafræðum og starfar sem verkefnisstýra kynjaðrar fjárhags- og starfsáætlunar hjá fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar.
Staður og stund:
Námskeið haldið fimmtudaginn 4. febrúar kl. 13:00-16:00 og föstudaginn 5. febrúar 9:00-12:00 í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ, Stakkahlíð, stofu K204 – Klettur.
Skráning á námskeiðið
Verð: 23.500 kr.
Fjarnám
Námskeiðið stendur einnig til boða í fjarnámi fyrir starfsmenn ríkis og sveitarfélaga sem starfa á landsbyggðinni.