Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss.
Með vísan til 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og með vísan til reglugerðar nr. 486/2016 er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir innflutning á kjöti úr dýrum af nautgripakyni og osti og ystingi, fyrir tímabilið 1. júlí 2016 til 30. júní 2017:
Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollur | Magntollur | |
Tollskrárnr: | kg | % | kr./kg. | ||
ex0210.xxxx | Nautgripkjöt - Vöruliður 0210: | 01.07.16 - 30.06.17 | 10.000 | ||
Kjöt af dýrum af nautgripakyni: | |||||
0210.2001 | -- Beinlaust | 0 | 0 | ||
0210.2009 | -- Annars | 0 | 0 | ||
0406.xxxx | Ostur og ystingur: | 01.07.16 - 30.06.17 | 15.000 | 0 | 0 |
Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt reglugerð nr. 448/2012, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vörunnar. Tilboð skulu ráða úthlutun.
Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, að Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, bréflega eða á [email protected], fyrir kl. 15:00 mánudaginn 13. júní 2016.