Ársfundur Jöfnunarsjóðs verður haldinn 21. september
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn miðvikudaginn 21. september næstkomandi á Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn hefst klukkan 16 og verður með svipuðu sniði og áður.
Boð á fundinn verða send út í byrjun september. Til fundarins verða boðaðir framkvæmdastjórar sveitarfélaga eða staðgenglar þeirra, fulltrúar samtaka sveitarfélaga og aðrir samstarfsaðilar Jöfnunarsjóðs.