Forgangsmál í ferðaþjónustu - morgunfundur á miðvikudaginn
Stjórnstöð ferðamála býður til opins kynningarfundar, miðvikudaginn 7. sept. kl. 8.00 á Grand Hótel Reykjavík. Kynntar verða niðurstöður tveggja forgangsverkefna í Vegvísi í ferðaþjónustu á sviði menntunar og hæfni, auk sviðsmynda- og áhættugreiningar.
Fundarstjóri er Grímur Sæmundsen, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.
Bein útsending frá fundinum verður á vef Ferðamálastofu