Hoppa yfir valmynd
5. september 2016 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ráðherra ávarpar aðalfund Skógræktarfélags Íslands

Ráðherra ávarpaði aðalfund Skógræktarfélags Íslands. - mynd

Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, ávarpaði á dögunum aðalfund Skógræktarfélags Íslands sem haldinn var á Djúpavogi. Þá heimsótti hún fyrirtækið Skógarorku sem rekur viðarkyndistöð á Hallormsstað.

Fjölmenni sótti aðalfund Skógræktarfélags Íslands um helgina sem haldinn var í Djúpavogskirkju og á hótel Framtíð. Í ávarpi sínu kynnti ráðherra m.a. nýtt verkefni varðandi aukna skógrækt á skóglausum svæðum, s.s. í Vestur-Húnavatnssýslu, sem sé fyrst og fremst sauðfjárræktarhérað. „Þetta tvennt getur vel farið saman, með góðu skipulagi. Skógar geta veitt búfé skjól og með tíð og tíma orðið gjöfult beitiland með margfalt meiri framleiðni en núverandi gróðurfar býr yfir,“ sagði ráðherra og bætti við að hún hefði falið Skógræktinni að vinna að sérstöku átaksverkefni á þessu svæði þar sem sækja mætti þekkingu til Skjólskóga á Vestfjörðum varðandi aðferðafræði.

Aðalfundurinn var vel sóttur.

 

Í heimsókn sinni til Skógarorku ræddi ráðherra við forsvarsmenn fyrirtækisins m.a. um rekstrarskilyrði þess, en um er að ræða nýjung í orkuframleiðslu á Íslandi, sem nýtir aukaafurðir skóga í sinni starfsemi. Hefur rekstrarumhverfi fyrirtækisins breyst síðustu misseri, m.a. vegna aukinnar ásóknar annarra fyrirtækja í trjákurl sem notað er við orkuframleiðsluna.

 

Ráðherra skoðaði viðarkyndistöð Skógarorku.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta