Samvinna Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í 25 ár
Mánudaginn 26. september minnumst við þess að árið 1991 endurheimtu Eystrasaltslöndin þrjú, Eistland, Lettland og Litháen, sjálfstæði sitt í þeirri lýðræðisbylgju sem þá fór um Evrópu með málþingi í Norræna húsinu frá kl. 14-16. Nú 25 árum síðar er samstarf Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna ennþá í forgangi meðal landanna allra.
DAGSKRÁ
Opnunarávarp: Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra
Inngangsræða: Hr. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands
Samstarf þingmanna: Carola Veit, forseti þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins (BSPC)
Norðurlöndin í Eystrasaltsríkjunum: Christer Haglund, framkvæmdastjóri skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Eistlandi
Pallborðsumræður utanríkisráðherra:
Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra Íslands
Linas Antanas Linkevicius, utanríkisráðherra Litháen
Edgars Rinkēvičs, utanríkisráðherra Lettlands
Jürgen Ligi, utanríkisráðherra Eistlands
Stjórn pallborðsumræðna: Bogi Ágústsson, fréttamaður RÚV
Fundarstjóri: Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra og formaður stjórnarnefndar Eystrasaltsráðsins
Viðburðurinn er skipulagður af Norðurlönd í fókus og formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu (CBSS) með þátttöku þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins (BSPC) og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.