Ráðstefna um réttarstöðu og velferð barna við andlát foreldris
Ráðstefna um réttarstöðu og velferð barna við andlát foreldris verður haldin í Norræna húsinu í Reykjavík miðvikudaginn 12. október næstkomandi og stendur frá klukkan 9 til 12. Verður þar fjallað um rannsóknir á stöðu barna við slíkar aðstæður, íslensk lög sem málið snerta, sagt frá tilraunaverkefni og endað á pallborðsumræðum um efnið.
Að ráðstefnunni standa innanríkisráðuneyti og velferðarráðuneyti í samstarfi við Rannsóknarstofnun í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands. Markmið ráðstefnunnar er meðal annars að miðla þekkingu um stöðu málefnisins, vekja umræðu og hafa áhrif til umbóta á réttarstöðu ungra barna og þjónustuúrræðum fyrir fjölskyldur.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra setur ráðstefnuna og síðan verða flutt erindi um efnið og í lok dagskrár verða pallborðsumræður. Ráðstefnan er öllum opin og er aðgangur ókeypis.
Dagskrá ráðstefnunnar:
Réttarstaða og velferð barna við andlát foreldris
Norræna húsinu í Reykjavík 12. október kl. 09:00–12:00
Fundarstjóri: Anna Rós Jóhannesdóttir, yfirfélagsráðgjafi Landspítalans.
09:00 – 09:10 Setning: Ólöf Nordal, innanríkisráðherra.
09:10 – 09:40 Rannsóknin: Staða barna við andlát móður úr krabbameini – raddir barnanna: Sigrún Júlíusdóttir, prófessor við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.
09:40 - 10:00 Íslensk löggjöf sem snertir rétt og velferð barna við andlát foreldris: Hrefna Friðriksdóttir, prófessor í fjölskyldu- og erfðarétti við lagadeild Háskóla Íslands.
10:00 - 10:20 Kaffihlé
10:20 - 10:40 Niðurstöður lokaritgerða við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands um stöðu barna við andlát foreldris: Edda Jóhannsdóttir, Elfa María Geirsdóttir og Sólveig Björg Arnarsdóttir.
10:40 - 11:00 Sjálfstæður réttur barns í sjúkdómsferli og við andlát foreldris: Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkrahúsprestur á Landspítala.
11:00 - 11:20 Forvarnir – tilraunaverkefni á Landspítala tengt Fjölskyldubrúnni: Gunnlaug Thorlacius, formaður Geðverndarfélags Íslands, félagsráðgjafi á Landspítala.
11:20 - 11:50 Panel umræður: Séra Bragi Skúlason, Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur, Elísabet Gísladóttir, lögfræðingur hjá umboðsmanni barna, Halldóra Hálfdánardóttir, deildarstjóri hjúkrunar krabbameinsdeildar Landspítalans, Sigurður Rafn Levy, sálfræðingur á barna- og unglingageðdeild, Valgerður Sigurðardóttir, yfirlæknir á líknardeild Landspítalans og Þóra Jónsdóttir, lögfræðingur hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi.
11:50 – 12:00 Lokaorð: Jón Bjarnason, fyrrverandi þingmaður og ráðherra.
12:00 Ráðstefnulok