Frestur til að fá skráðan listabókstaf rennur út á hádegi 11. október
Framboðsfrestur rennur út þremur sólarhringum síðar, föstudaginn 14. október kl. 12 á hádegi. Framboðum skal skila til hlutaðeigandi yfirkjörstjórna.
Landskjörstjórn auglýsir svo eigi síðar en 19. október fyrir hvaða stjórnmálasamtök framboðslistar eru bornir fram við alþingiskosningarnar 29. október og tilgreinir bókstaf hvers lista.