Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Evrópubandalaginu.
Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópubandalagsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar nr. 1004/2016 um úthlutina, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópubandalagsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2017:
Vakin er athygli á því að úthlutunartímabil tollkvóta samkvæmt auglýsingunni eru sex mánuðir í stað 12 mánaða eins og verið hefur. Vörumagn er því helmingað. Með breytingunni er þess vænst að innflutningur dreifist með jafnari hætti og verði í betra samræmi við þarfir íslensks markaðar. Ennfremur munu þeir sem fá ekki úthlutað að þessu sinni eiga að nýju möguleika á úthlutun eftir sex mánuði í stað 12 mánaða, þegar samskonar úthlutun á sér stað.
Tafla I
Vöruliður: | Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollur | Magntollur |
kg | % | kr./kg | |||
0202 | Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst | 01.01. - 30.06.17 | 50.000 | 0 | 0 |
0203 | Svínakjöt, fryst | 01.01. - 30.06.17 | 100.000 | 0 | 0 |
0207 | Kjöt af alifuglum, fryst | 01.01. - 30.06.17 | 100.000 | 0 | 0 |
0208.9003 | Rjúpur, frystar | 01.01. - 30.06.17 | ótilgreint | 0 | 0 |
ex 0210 | Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum (**) | 01.01. - 30.06.17 | 25.000 | 0 | 0 |
ex 0406 | Ostur og ystingur (**) | 01.01. - 30.06.17 | 10.000 | 0 | 0 |
0406 | Ostur og ystingur | 01.01. - 30.06.17 | 40.000 | 0 | 0 |
1601 | Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum | 01.01. - 30.06.17 | 25.000 | 0 | 0 |
1602 | Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum | 01.01. - 30.06.17 | 25.000 | 0 | 0 |
(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum nr. 448/2012.
Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 16:00 föstudaginn 2. desember 2016.