Styrkur til verkefna í þágu psoriasis- og exemsjúklinga
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra og Ingvar Ágúst Ingvarsson, formaður Spoex; Samtaka psoriasis- og exemsjúklinga, undirrituðu í dag samkomulag um 25 milljóna króna styrk sem samtökin fá til að styrkja ýmis hagsmunamál psoriasis- og exemsjúklinga.
Í maí sl. gerðu Bláa lónið og Sjúkratryggingar Íslands með sér samning þess efnis að Bláa lónið veitti sjúkratryggðum psoriasissjúklingum á Íslandi meðferð þeim að kostnaðarlausu og án opinberrar greiðsluþátttöku. Heilbrigðisráðherra ákvað þá að nýta fjármuni sem spöruðust hjá hinu opinbera vegna þessa til að styrkja ýmis hagsmunamál psoriasis- og exemsjúklinga í samræmi við áherslur samtaka þeirra. Samkvæmt samkomulagi um styrkinn skal nýta hann til eftirtalinna verkefna:
-
þarfagreiningar á stöðu psoriasis-, psoriasisgigtar- og exemsjúklinga á Íslandi,
-
styrkingu þjónustu við sjúklinga og bættri aðstöðu í húsnæði Spoex að Bolholti 6,
-
í vísindasjóð Spoex,
-
til endunýjunar á fræðsluefni Spoex um psoriasis, psoriasisgikt og exem
-
að hefja undirbúning að gerð klínískra leiðbeininga um psoriasis og psoriasisgigt fyrir íslenska sjúklinga.