Styrkir til verkefna 2017
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur úthlutað styrkjum til verkefna á málefnasviði ráðuneytisins.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið veitir árlega styrki til verkefna á vegum félaga, samtaka og einstaklinga. Í verkefnaúthlutun ráðuneytisins í ár voru 33,4 milljónir króna til ráðstöfunar. Heildarupphæð umsókna um verkefnastyrki nam tæplega 154,5 milljónum króna.
Eftirfarandi umsækjendur og verkefni hlutu styrki fyrir árið 2017:
Nafn umsækjanda | Verkefni | Styrkur |
Blái herinn | Hreinsun strandlengjunnar | 1.500.000 |
Djúpavogshreppur | Ráðstefnur um tækifæri í friðlýstum svæðum á Austurlandi | 400.000 |
Efla hf | Rannsókn á losun gróðurhúsalofttegunda frá íslenskum urðunarstöðum | 3.000.000 |
Fenúr | Aðalfundur og ráðstefnu ISWA 2017 | 250.000 |
Fenúr | Þátttaka í evrópskri nýtniviku 2017 | 1.500.000 |
Finnur Ingimarsson | Staða vistkerfis á strandbotni Þingvallavatns | 2.000.000 |
Fjórðungssamband Vestfirðinga | Fyrirlestrarröð og kynning á umhverfisvottun sveitarfélagana á Vestfjörðum | 800.000 |
Fuglaathugunarstöð Suðausturland | IBOC 2017 | 210.000 |
Fuglaathugunarstöð Suðausturland | Merkingar og talningar á fuglum í Lóni | 850.000 |
Fuglaverndarfélag Íslands | Alheimsþing BirdLife International | 310.000 |
Fuglaverndarfélag Íslands | Lífríki Friðlands í Flóa og áhrif endurheimtar á votlendi | 700.000 |
Gróður fyrir fólk | LAND-NÁM - endurheimt birkiskóga suðvesturhornsins með skólaæskunni | 1.500.000 |
Gróður fyrir fólk | Vistvangur höfuðborgarsvæðisins | 1.500.000 |
Gunnar Steinn Jónsson | Gagnagrunnur um svifþörunga Þingvallavatns | 800.000 |
Hið íslenska náttúrufræðifélag | Umbrotsforrit fyrir tímaritið Náttúrufræðinginn | 850.000 |
Hjólafærni á Íslandi | Hjólum til framtíðar 2017 - öryggi og ánægja; reiðhjólaráðstefna í Evrópsku samgönguvikunni | 500.000 |
Hjólafærni á Íslandi | Cycling Iceland 2017 | 300.000 |
Hjólafærni á Íslandi | Hjólavottun vinnustaða | 500.000 |
Hrafnhildur Bragadóttir | Rannsókn á alþjóðlegu og evrópsku regluverki loftslagsmála með áherslu á stöðu Íslands | 800.000 |
JÖKLAVERÖLD ehf | Heimildarmynd um sambúð manns og jökuls í Hoffelli | 1.000.000 |
Kirkjubæjarstofa | Arfur - Fornar ferðaleiðir í Skaftárhreppi, um aldamótin 1900 | 1.500.000 |
Landvarðafélag Ísland | Evrópuráðstefnu landvarða 2017 | 160.000 |
Landvernd | Þátttaka í aðildarríkjafundi Árósasamningsins 2017 | 180.000 |
Landvernd | CARE: Sjálfboðaliðaverkefni í landgræðslu | 600.000 |
Landvernd | Loftslagsverkefni Landverndar | 1.500.000 |
Landvernd | Fræðsla ungmenna og vistheimt á örfoka landi | 2.000.000 |
Landvernd | Bláfáninn | 2.000.000 |
Lísa samtök | Erlent samstarf | 250.000 |
Melrakkasetur Íslands | Refarannsókn á Hornströndum | 1.200.000 |
Náttúruverndarsamtök Íslands | Fundur SÞ um loftslagsmál | 450.000 |
Reykjanes jarðvangur | Reykjanes Geopark í erlendu samstarfi | 160.000 |
Samráðsvettvangur íslenskra jarðvanga | Bæklingur "UNESCO hnattrænir jarðvangar" (UNESCO Global Geoparks) | 550.000 |
Skógræktarfélag Fnjóskdæla | Uppbygging landgræðsluskógasvæðis á Hálsmelum | 600.000 |
Skógræktarfélag Íslands | Fundur European Forest Network og Deutscher Forstverein 2017 | 220.000 |
Skógræktarfélag Íslands | Móttaka skógræktarfélagsfólks frá Sogni og Fjörðum | 400.000 |
Skógræktarfélag Íslands | Opinn skógur - Brynjudalsskógur | 1.500.000 |
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur | Bioblitz í Elliðaárdal | 500.000 |
Ungir umhverfissinnar | Kynningar um umhverfismál í menntaskólum | 400.000 |
Samtals | 33.440.000 |