Drög að frumvarpi um skógrækt til umsagnar
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til laga um skógrækt. Um er að ræða heildarendurskoðun á lögunum en lög um skógrækt eru frá árinu 1955.
Frumvarpið felur m.a. í sér að lög um skógrækt á lögbýlum eru felld í heildarlög um skógrækt. Meginbreytingar á lögunum fela í sér gerð landsáætlunar í skógrækt, ákvæði um fellingarleyfi og sjálfbæra nýtingu skóga.
Frestur til að skila umsögnum um frumvarpsdrögin er til 19. mars nk. og má senda þær á netfangið [email protected] eða í bréfpósti, á umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.