Hoppa yfir valmynd
22. maí 2017 Utanríkisráðuneytið

Ræddu samskipti Íslands og Kína

Guðlaugur Þór tekur á móti Zhao Hongzhu - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í dag fund með Zhao Hongzhu, stjórnarmanni í miðstjórn kínverska kommúnistaflokksins, sem staddur er hér á landi. Á fundi sínum ræddu þeir samskipti Íslands og Kína, þar með talið framkvæmd tvíhliða fríverslunarsamnings milli ríkjanna, en viðskipti Íslands og Kína hafa aukist ár frá ári frá gildistöku hans. Kínverskum ferðamönnum hingað til lands hefur sömuleiðis fjölgað mjög en búist er við að þeir verði um 100.000 í ár. Þá hafa umsvif íslenskra fyrirtæki í Kína einnig aukist. Ítarlega var rætt um jarðhitanýtingu og íslenska sérþekkingu á því sviði sem Zhao Hongzhu sagði mjög eftirsóknarverða. Voru aðilar sammála um að frekari möguleikar væru til staðar í jarðhitasamstarfi.

Utanríkisráðherra tók upp stöðu mannréttindamála í Kína og hvatti þarlend stjórnvöld til umbóta. Einnig var staða mála í Norður Kóreu rædd. Að endingu voru málefni norðurslóða á dagskrá, en Kína á áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu og hefur samstarf ríkjanna farið vaxandi, m.a. á sviði vísinda, siglinga og verndunar hafsins.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd
Heimsmarkmið - mynd
Heimsmarkmið - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta