Utanríkisráðherrar Eystrasaltsráðsins funduðu í Reykjavík
Fundi utanríkisráðherra
ríkja Eystrasaltsráðsins, sem haldinn var í Hörpu, lauk nú síðdegis. Guðlaugur
Þór Þórðarson utanríkisráðherra stýrði fundinum sem haldinn var í tilefni af 25
ára afmæli Eystrasaltsráðsins og markaði ennfremur lok formennsku Íslands í
ráðinu. Utanríkisráðherrarnir samþykktu meðal annars að stofna stefnumótunarhóp,
sem skila á skýrslu um framtíðarhlutverk ráðsins og samstarf á svæðinu að ári.
Þá var á fundinum fjallað um þátt svæðisbundins samstarf við innleiðingu
Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Í ræðu sinni á fundinum
lagði utanríkisráðherra meðal annars áherslu á mikilvægi Eystrasaltsráðsins og
svæðisbundinnar samvinnu, ekki síst á tímum óvissu og áskorana í
Evrópu.
„Gildi samtalsins er
ótvírætt og ég er mjög ánægður með að utanríkisráðherrar ríkja
Eystrasaltsráðsins hafi komið hér saman til fundar - í fyrsta skipti síðan átök
brutust út í Úkraínu. Þá hafa áherslur okkar í Eystrasaltsráðinu mælst einkar
vel fyrir og ánægjulegt að ljúka formennskutímabilinu á vel heppnuðum
utanríkisráðherrafundi í Reykjavík," segir Guðlaugur Þór sem afhenti
utanríkisráðherra Svíþjóðar formennskukeflið í lok fundar. Í formennskutíð sinni
lagði Ísland áherslu á lýðræði, jafnrétti og börn, og stóðu stjórnvöld fyrir
margvíslegum viðburðum á formennskuárinu, meðal annars rakarastofuráðstefnu nú í
vor.
Þá átti
utanríkisráðherra tvíhliða fund með Sven Mikser, utanríkisráðherra Eistlands,
þar sem tvíhliða samskipti ríkjanna, öryggis- og varnarmál og Brexit voru meðal
umræðuefna. Guðlaugur Þór mun ennfremur eiga tvíhliða fundi í fyrramálið með
utanríkisráðherrum Póllands og Danmerkur.
Eystrasaltsráðið var
stofnað árið 1992 en aðild að ráðinu eiga Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin,
Rússland, Pólland og Þýskaland, auk Evrópusambandsins.