Til umsagnar: Reglugerð um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja
Velferðarráðuneytið birtir hér með til umsagnar drög að nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja sem ætlað er að fella úr gildi reglugerðir nr. 421/2017 og nr. 442/2017. Markmið reglugerðarinnar er að kveða á um verklag við ávísanir og afhendingu lyfja.
Frestur til að skila ráðuneytinu umsögnum er til 28. ágúst 2017.
Umsagnir skal senda ráðuneytinu á netfangið [email protected] og skrifa í efnislínu: Umsögn vegna reglugerðar um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja.