Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 4. október
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn miðvikudaginn 4. október næstkomandi á Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn hefst klukkan 16 og verður með svipuðu sniði og áður.
Til fundarins verða boðaðir framkvæmdastjórar sveitarfélaga eða staðgenglar þeirra, fulltrúar samtaka sveitarfélaga og aðrir samstarfsaðilar Jöfnunarsjóðs. Boð á fundinn verða send út í september.