Utanríkisþjónusta til framtíðar: Hagsmunagæsla í síbreytilegum heimi
Skýrsla stýrihóps utanríkisráðuneytisins um framtíð utanríkisþjónustunnar.
Skýrslan beinir sjónum að þeim tækifærum og áskorunum sem utanríkisþjónustan stendur frammi fyrir á næstu árum og gerðar tillögur um hvernig laga megi starfsemi utanríkisþjónustunnar að verkefnum framtíðarinnar. „Með þessari skýrslu og tillögugerð er mörkuð heildstæð sýn á hvernig kröftum okkar verður best varið á næstu árum miðað við þau verkefni og þau tækifæri sem fram undan eru í alþjóðlegum efnahagsmálum, alþjóðastjórnmálum, umhverfismálum, þróunarsamvinnu og þar fram eftir götunum,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. „Aldrei áður hefur verið ráðist í jafn umfangsmikla rýni á starfsemi utanríkisþjónustunnar og þetta verður fyrsta skrefið á langri leið.“