Skipað í stýrihóp Stjórnarráðsins um mannréttindi
Dómsmálaráðherra hefur skipað í stýrihóp Stjórnarráðsins um mannréttindi. Ráðherra kynnti í ríkisstjórn í apríl fyrirhugaða skipun stýrihóps um mannréttindi þar sem öll ráðuneyti eiga fulltrúa. Ragna Bjarnadóttir, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu er formaður hópsins.
Þar sem mannréttindi varða Stjórnarráðið í heild, stjórnsýsluna og sveitarfélög landsins er öflug samvinna um málaflokkinn talin nauðsynleg. Markmiðið með stofnun stýrihópsins er að koma á formlegum samráðsvettvangi til að tryggja stöðugleika í verklagi og fasta aðkomu allra ráðuneyta að mannréttindamálum.
Viðfangsefni stýrihópsins verða meðal annars:
- Að fylgja eftir tilmælum vegna úttekta mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála hérlendis (UPR, Universal Periodic Review), sem og úttekta annarra alþjóðlegra eftirlitsaðila.
- Að eiga samskipti við ríkislögmann vegna dómsmála fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu, sjá um eftirfylgni og fullnustu dóma hans.
- Að hafa umsjón með að samræma svör ráðuneyta við spurningalistum alþjóðlegra eftirlitsaðila.
- Að stuðla að samhæfðri utanríkis- og innanríkisstefnu í mannréttindamálum.
- Að tryggja upplýsingagjöf milli ráðuneyta og undirstofnana þeirra, upplýsingastreymi til Alþingis, sem og til ýmissa annarra aðila.
Stýrihópurinn er þannig skipaður:
- Ragna Bjarnadóttir lögfræðingur, sem er formaður, tilnefnd af dómsmálaráðherra,
- Haraldur Steinþórsson lögfræðingur, tilnefndur af fjármála- og efnahagsráðuneytinu,
- Arndís Dögg Arnardóttir ritari ráðuneytisstjóra, tilnefnd af samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu,
- Sigurbjörg Stella Guðmundsdóttir lögfræðingur, tilnefnd af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu,
- Kjartan Ingvarsson, lögfræðingur tilnefndur af umhverfis- og auðlindaráðuneytinu,
- Davíð Logi Sigurðsson, sérfræðingur tilnefndur af utanríkisráðuneytinu,
- Héðinn Unnsteinsson sérfræðingur, tilnefndur af forsætisráðuneytinu,
- Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir skrifstofustjóri, tilnefnd af velferðarráðuneytinu,
- Jón Fannar Kolbeinsson lögfræðingur, tilnefndur af velferðarráðuneytinu,
- Guðni Olgeirsson sérfræðingur, tilnefndur af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Gert er ráð fyrir því að stýrihópurinn muni byrja á því að leggja fram í sérstakri verkefnaáætlun nákvæma útfærslu á verkefnum hópsins. Með hópnum munu starfa María Rut Kristinsdóttir sérfræðingur í dómsmálaráðuneytinu og Sunna Diðriksdóttir ritari í dómsmálaráðuneytinu, auk starfsmanna úr öðrum ráðuneytum eftir því sem við á.