Alls barst 41 umsókn um 8 stöður héraðsdómara
Dómsmálaráðuneytinu hefur borist 41 umsókn um 8 stöður héraðsdómara sem auglýstar voru lausar til umsóknar 1. september sl. Umsóknarfrestur rann út 18. september.
Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að víkja sæti í málinu vegna umsóknar Ástráðs Haraldssonar hæstaréttarlögmanns. Telur hún að fyrir hendi séu aðstæður sem séu til þess fallnar að umsækjendur dragi óhlutdrægni hennar i efa. Hefur hún óskað eftir því við forsætisráðherra að öðrum ráðherra í ríkisstjórninni verði falin meðferð málsins. Dómnefnd um hæfni dómara sem starfar á grundvelli 4. gr. a laga um dómstóla, nr. 15/1998, mun fá umsóknirnar til meðferðar.
Umsækjendur um dómaraembættin eru:
- Anna Kristín Úlfarsdóttir - yfirlögfræðingur hjá landbúnaðarsýslu norska ríkisins
- Anna Mjöll Karlsdóttir - yfirlögfræðingur hjá Fjármálaeftirlitinu
- Arnaldur Hjartarson - aðstoðarmaður dómara við EFTA-dómstólinn
- Arnar Þór Jónsson - lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík
- Auður Björg Jónsdóttir - hæstaréttarlögmaður
- Ásbjörn Jónasson - aðstoðarmaður héraðsdómara
- Ásgeir Jónsson - hæstaréttarlögmaður
- Ásgerður Ragnarsdóttir - hæstaréttarlögmaður
- Ástráður Haraldsson - hæstaréttarlögmaður
- Bergþóra Ingólfsdóttir - hæstaréttarlögmaður
- Bjarnveig Eiríksdóttir - héraðsdómslögmaður
- Brynjólfur Hjartarson - lögfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu
- Daði Kristjánsson - saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara
- Guðfinnur Stefánsson - aðstoðarmaður héraðsdómara
- Guðmundína Ragnarsdóttir - héraðsdómslögmaður
- Guðmundur Örn Guðmundsson - héraðsdómslögmaður
- Gyða Bergsdóttir - aðstoðarmaður héraðsdómara
- Hákon Þorsteinsson - aðstoðarmaður héraðsdómara
- Helgi Sigurðsson - hæstaréttarlögmaður
- Hrannar Hafberg - ráðgjafi Fiskistofu
- Indriði Þorkelsson - hæstaréttarlögmaður
- Ingiríður Lúðvíksdóttir - settur héraðsdómari
- Jón Þór Ólason - héraðsdómslögmaður og lektor við Háskóla Íslands
- Jónas Jóhannsson - hæstaréttarlögmaður
- Magnús Guðlaugsson - hæstaréttarlögmaður
- Nanna Magnadóttir - forstöðumaður úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál
- Ólafur Freyr Frímannsson - héraðsdómslögmaður
- Ólafur Karl Eyjólfsson - héraðsdómslögmaður
- Pétur Dam Leifsson - dósent við lagadeild Háskóla Íslands
- Ragnheiður E. Þorsteinsdóttir - héraðsdómslögmaður og lektor við Háskólann á Akureyri
- Sigurður Jónsson - hæstaréttarlögmaður
- Sonja María Hreiðarsdóttir - lögmaður hjá embætti borgarlögmanns
- Sólveig Ingadóttir - aðstoðarmaður héraðsdómara
- Stefán Erlendsson - héraðsdómslögmaður
- Stefanía Guðrún Sæmundsdóttir - saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara
- Tómas Hrafn Sveinsson - hæstaréttarlögmaður
- Unnsteinn Örn Elvarsson - héraðsdómslögmaður
- Valborg Steingrímsdóttir - aðstoðarmaður héraðsdómara
- Þór Hauksson Reykdal - forstöðumaður hjá Vinnumálastofnun
- Þórhildur Líndal - aðstoðarmaður héraðsdómara
- Þórir Örn Árnason - héraðsdómslögmaður