Morgunfundur um áhættumat HAFRÓ – miðvikudaginn 27. sept. kl. 9:00-10:15
Fiskeldismál hafa verið í brennidepli umræðunnar og miðvikudaginn 27. september mun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið halda opinn morgunfund um Áhættumat HAFRÓ vegna mögulegrar erfðablöndunar frá laxeldi sem stofnunin gaf út síðastliðið sumar.
Frummælendur:
- Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar
- Dr. Geir Lasse Taranger, norsku Hafrannsóknastofnuninni (Havforskningsinstituttet)
- Bára Gunnlaugsdóttir, Stofnfiski
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra stýrir fundinum.
Staður: Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Skúlagötu 4, salur á 1. hæð
Stund: Miðvikudagsmorguninn 27. september kl. 9:00 – 10:15
(létt morgunhressing og forspjall frá kl. 8:40)