Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn 4. október
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn miðvikudaginn 4. október nk. á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Fundurinn verður í sal H-I á annarri hæð hótelsins og hefst kl. 16.
Til fundarins eru boðaðir framkvæmdastjórar sveitarfélaga eða staðgenglar þeirra, fulltrúar samtaka sveitarfélaga og aðrir samstarfsaðilar Jöfnunarsjóðs.
Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:
- Ávarp ráðherra: Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
- Ársskýrsla Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2016: Guðni Geir Einarsson sérfræðingur
- Endurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga: Kristinn Jónasson formaður nefndar sem endurskoðar regluverk Jöfnunarsjóðs
- Gögn á ytri vef Jöfnunarsjóðs: Fulltrúi frá Capacent
Fundarstjóri verður Guðný Sverrisdóttir, formaður ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.