Hækkun útgjaldajöfnunarframlaga Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um hækkun útgjaldajöfnunarframlaga sjóðsins á árinu 2017 um 500 m.kr. Áætlað útgjaldajöfnunarframlag skv. A- hluta framlaganna nemur því 7.550 m.kr.
Áætlað framlag vegna B-hluta útgjaldajöfnunarframlaga ársins nemur 575 m.kr. en í lok ársins verður úthlutað 175 m.kr. á grundvelli umsókna frá sveitarfélögum vegna íþyngjandi kostnaðar við skólaakstur á árinu 2017 umfram tekjur.
Uppgjör framlaganna fyrstu 10 mánuði ársins fer fram 13. nóvember næstkomandi.
Áætlun um heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga er því 8.300 m.kr.